21.4.2007 | 14:28
Mjólk virkilega dýrari en cola?!
Nú get ég ekki beint sagt að ég hafi miklar staðreindir eða heimildir á bakvið mig þar sem þetta flaug bara í huga mér í vinnunni um daginn og þar sem ég vinn á kassa þá náttúrulega fljúga verð og tilboð í huga mínum alla daga og var það bara fyrir stuttu síðan þegar að ónefnd cola tegund var á tilboði hjá okkur eða 99kr. 2l. flaska og eru það stærstu umbúðir af þessari sort sem hægt er að versla sér út í búð á okkar ástkæra landi, hinsvegar þá kostar 2l af mjólk (einnig stærsta umbúð af þeirri sort, að ég best veit) kostar í kringum 125kr. og ekki hef ég orðið beint vör við nein rosa tilboð á blessaðri mjólkinni fyrir utan það þegar verið var að selja hana á krónu í einhverju samkeppnis rugli.
Sem sagt 2l cola = 99kr. 2l mjólk ~ 125kr. og nú hugsar eflaust einhver "þetta er nú ekki sanngjarnt, colað var á tilboði" nú? og hvað með það? ekki eins og það sé algeng sjón að sjá mjólk á tilboði, enda er hún nauðsynja vara, og enginn hagnaður í að bjóða gott verð á mjólk. Þá er það stór spurning hvort þetta sé virkilega ákjósanlegt? Er ekki einhver galli í landbúnaði hjá okkur Íslendingum eða erum við bara of treg?
Ekki misskylja mig og halda að ég sé að ýja að því að hækka verðið á gosi en þetta eru hálf sláandi tölur þó svo að þær séu ekki á beint áræðanlegum staðreindum né heimildum byggðar.
(tölur þessar hafa enga heimild á baki sér og mun búðin því verða ónefnd og biðst ég forláts ef ég fer með rangt mál)
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.